Ferlið við byggingu sumarhúsa og viðbygginga

Frá fyrstu teikningu til lokaúttektar. Að byggja sumarhús eða stækka það sem fyrir er er spennandi vegferð, en henni fylgir talsverð sýslun og kröfur samkvæmt byggingarreglugerð.

Mikilvægt: Sömu reglur gilda um byggingu nýs sumarhúss og viðbyggingar við eldra hús; hvort tveggja krefst fullnaðar hönnunar, byggingarleyfis og samþykkis yfirvalda.

01 Deiliskipulagið – Ramminn utan um hönnunina

Áður en teiknivinnan hefst er nauðsynlegt að kynna sér deiliskipulag viðkomandi svæðis vel. Skipulagið setur rammann sem hönnunin verður að rúmast innan og þar er oft kveðið á um:

02 Af hverju að láta hönnunarstjóra sjá um umsóknina?

Þótt eigandi lóðar geti tæknilega séð stofnað umsókn um byggingarleyfi sjálfur, mælum við eindregið með því að hönnunarstjóri (arkitekt eða byggingarfræðingur) annist ferlið frá upphafi. Við sjáum um að öll gögn séu samræmd, svörum athugasemdum byggingarfulltrúa og tryggjum að ferlið gangi snurðulaust fyrir sig.

Hvenær á að ráða hönnuði?

Lykillinn að farsælu verkefni er að huga að tæknilegri hönnun snemma.

Með því að samræma vinnu aðalhönnuðar og verkfræðinga snemma má koma í veg fyrir dýrar breytingar á síðustu stundu.

03 Fyrir byggingarleyfi

Til þess að fá útgefið byggingarleyfi og geta hafið framkvæmdir þarf grunnurinn að vera traustur:

Skref 1

Samþykktar aðalteikningar

Teikningar frá aðalhönnuði sem sýna útlit, staðsetningu á lóð og skipulag.

Skref 2

Skráning fagfólks

Upplýsingar um byggingarstjóra og ábyrga iðnmeistara. Þegar kemur að sumarhúsum er algengt að sami aðili starfi bæði sem byggingarstjóri og húsasmíðameistari. Athugið þó að starfsábyrgðartrygging byggingarstjóra verður alltaf að vera til staðar.

Skref 3

Greiðsla gjalda

Leyfisgjöld til sveitarfélagsins verða að vera greidd.

04 Séruppdrættir – Hönnun tæknikerfa og deila

Byggingarleyfið byggir á aðalteikningum, en á meðan byggt er þarf að skila inn ítarlegri séruppdráttum sem hönnunarstjóri samræmir:

05 Lokaúttekt – Húsið fullbúið

Til þess að framkvæmdin teljist formlega fullbúin og örugg þarf lokaúttekt að fara fram. Þá þarf allt að vera til staðar í gagnasafni sveitarfélagsins:

06 Óleyfisframkvæmdir og dagsektir

Varúð: Ef ráðist er í framkvæmdir án tilskilinna leyfa getur byggingarfulltrúi krafist þess að framkvæmdin sé fjarlægð. Sveitarfélög geta beitt dagsektum sem numið geta allt að 500.000 kr. þar til látið er af óleyfisframkvæmd eða hún löguð að gildandi reglum.

Til þess að slík umsókn verði samþykkt þarf að lágmarki að ráða aðalhönnuð/hönnunarstjóra og byggingarstjóra sem eru tilbúnir að bera ábyrgð á framkvæmdinni og staðfesta að hún standist byggingarreglugerð.

ÞARFT ÞÚ AÐSTOÐ VIÐ BYGGINGARLEYFI?

Við hjá Valhönnun sjáum um allt ferlið frá fyrstu hugmynd til lokaúttektar.

Hafðu samband